Kosningabaráttan innan stórveldisins Real Madrid er farin að taka á sig myndir sem myndu sóma sér vel í hefðbundnum leðjuslag í stjórnmálum.
Florentino Perez, núverandi forsti félagsins, ætlar að kynna Jose Mourinho til leiks sem næsta stjóra vinni hann kosningaslaginn á laugardag. Hann hefur þegar krækt í Ibrahima Konate frá Liverpool.
Mótframbjóðandi Perez, Enrique Riquelme, ætlar að gera enn betur ef hann verður kjörinn. Hann ætlar nefnilega að ráða Jürgen Klopp sem stjóra og kaupa Erik Håland frá Manchester City.
Riquelme gerðist meira að segja svo djarfur að flagga skyrtu númer 9 með nafni Håland aftan á til að vekja athygli á framboði sínu.
Það er skemmst frá því að segja að Manchester City íhugar málshöfðun á hendur Real Madrid fyrir að brjóta gróflega gegn reglum um samningsbunda leikmenn annarra liða.
No comments yet