Ef eitthvað er að marka áreiðanlega bloggara á X (áður Twitter) er talið meira en líklegt að Liverpool landi bæði Yankuba Minteh og Bradley Barcola á næstu dögum.
Brighton hefur þegar hafnað 60 milljóna punda boði í Minteh, en talið er að liðin mætist á miðri leið með 63 milljóna punda greiðslu auk ákvæðis um 7 milljóna árangurstengdra greiðslna.
Liverpool hefur um talsvert skeið fylgst með Minteh, sem er 22 ára gamall. Óneitanlega óheppileg tilviljun að hann skuli vera meiddur loks þegar alvara færist í málin. Minteh verður frá þangað til í október.
Samningaviðræðum Liverpool við PSG um Bradley Barcola miðar vel og ekki er loku fyrir það skotið að endanlegt kaupverð verði ca. 125 milljónir punda.
Hins vegar virðist ljóst að ekkert verður af kaupum á Ibrahim Mbaye frá PSG.
Reiknað er með Barcola á vinstri væng og Minteh á þeim hægri og Iraola hefur þá hug á að nota Gakpo sem miðherja á móti Isak.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
Mynd: Yankuba Minteh.
No comments yet