Olise til Liverpool og Wirtz til Bayern?

Þótt sumarlugganum hafi verið skellt í lás fyrir tveimur vikum er ekkert lát á orðrómum um leikmenn sem ýmist eru í sigtinu hjá Liverpool eða á leið þaðan.

Einhver allra áhugaverðasti orðrómurinn þessa dagana er að Liverpool muni kaupa Michael Olise frá Bayern München næsta sumar.

Liverpool hefur fylgst grannt með Olise allt frá árinu 2019, en hann verður 25 ára seint á árinu. Olise hefur staðið sig frábærlega í München frá því að Bæjarar keyptu hann frá Palace sumarið 2024.

Engum dylst að verðmiðinn á Olise verður skrautlegur yfirgefi hann Bayern, en þar á bæ virðast þegar uppi efasemdir um að hann muni framlengja núverandi samning.

Eins og kunnugt er reyndi Bayern allt til að fá Wirtz sumarið 2025 en tókst ekki. Hann hefur enn ekki náð þeim hæðum sem vonast var eftir hjá Liverpool.

Nú virðist sem forráðamenn félagsins skoði þann möguleika í alvöru að bjóða Bayern að fá Wirtz sem hluta af kaupverði Olise og greiða mismun verðs.

Rétt er að taka það fram að þrátt fyrir óvægna gagnrýni hefur Wirtz aldrei ljáð máls á því að yfirgefa Liverpool. Hann vissi að þetta yrði honum mikil áskorun og segist staðráðinn í að yfirvinna allar hindranir.

No comments yet