Slot slátraði Quansah sem nú er í sigtinu hjá Real Madrid

Jarrell Quansah átti ekki beint upp á pallborðið hjá Arne Slot. Hann var reyndar í byrjunarliðinu gegn Ipswich í fyrsta leik keppnistímabilsins 2024-2025 en var tekinn út af í hálfleik.

Slíkt er auðvitað ekkert einsdæmi en þessi stórefnilegi leikmaður var aðeins byrjunarliðsmaður í þremur deildarleikjum eftir þetta á leiktíðinni, þar af tveimur eftir að titillinn var í höfn vorið 2025.

Flestum fannst meðferðin á Quansah vægast sagt ósanngjörn enda hann aðeins 22 ára gamall í stöðu þar sem leikmenn ná almennt ekki fullum þroska í fyrr en 26-7 ára gamlir.

Til að kóróna meðferðina var Quansah svo seldur sumarið 2025. Ótrúlegur gjörningur!

Kaupandinn var Bayer Leverkusen og hugsanlega spilaði þarna inn í að Liverpool var að kaupa Jeremie Frimpong frá Leverkusen.

Quansah átti frábæra fyrstu leiktíð með Leverkusen, lék 32 leiki og skoraði 4 mörk. Frammistaða hans hefur vakið verðskuldaða athygli. Thomas Tuchel valdi hann í HM-hóp Engendinga í sumar og hann lék t.d. allan leikinn í 7:0 sigri Englands á Króatíu í dag (3. okt.).

En það eru fleiri en Tuchel sem hafa tekið eftir Quansah því nú berast þær fréttir að Real Madrid sé með hann undir smásjá. Það væri eftir öðru að leikmaðurinn, sem Slot hreinlega tók af lífi, endaði eftir allt saman hjá Real!

Mynd: Jarrell Quansah í fyrsta landsleik sínum með Englendingum gegn Albaníu í nóvember í fyrra.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet