BBC greindi frá því fyrir stuttu og vitnaði í vefmiðilinn The Athletic, að eignarhlutur 1892 Holdings Ltd. í Liverool Football Club væri 38% en ekki 30% eins og ítrekað hefur komið fram í féttum.
Fjárfestahópnum að baki 1892 Holdings Ltd. býðst einnig að auka við hlut sinn innan árs og verða ráðandi eignaraðili.
Fyrir kaupunum fer hópur undir forystu Amit Bhatia, en auk hans eru lykilmenn í hópnum Jeff Bezos, eigandi Amazon sem metinn er 4. ríkasti maður heims og Eduardo Saverin, sem stofnaði Facebook ásamt Mark Zuckerberg á sínum tíma.
Bhatia mun taka sæti í stjórn félagsins auk eiginkonu Saverin, Elaine. Einnig kemur í stjórn félagsins Bryan Baum, sem fer fyrir fjárfestingarfyrirtækinu K5 Sports, en kaup Bezos eru í gegnum það fyirtæki. Bezos tekur ekki sæti í stjórninni.
Markmiðið með sölunni var klárlega að fá inn sterka fjárfesta og greinendum þykir ljóst að þetta sé aðeins fyrsta skref FSG í að selja félagið að fullu, hvað sem líður öllum yfirlýsingum um annað.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
Mynd: Jeff Bezos er á meðal kaupenda að 38% hlut í Liverpool Football Club.
No comments yet