Hver verður arfleifð Richard Hughes á Anfield?

Liverpool tilkynnti í dag, 5. september, að Richard Hughes, sem hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu frá vorinu 2024, hefði látið af störfum. Hughes mun hefja störf hjá Al-Hilal í Sádí-arabísku deildinni innan skamms.

Brotthvarf Hughes er eitthvert verst varðveitta leyndarmál sumarsins því strax snemma á árinu kvisaðist það út að hann myndi taka við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Al-Hilal um leið og sumarglugginn lokaði í Premier League.

Blásið um Hughes
Óhætt er að segja að blásið hafi um Hughes í sumar. Mörgum finnst sérkennilegt að hafa hann ábyrgan fyrir kaupum og sölum í sumar þegar vitað var að hann væri að fara, en aðrir benda á að honum hafi einungis verið gefið færi á að ljúka því verkefni sem hann hóf.

En hvaða verkefni var það? Var það ekki að styrkja leikmannahópinn? Á rúmu ári hefur Liverpool greitt 670 milljónir punda fyrir leikmenn!

Margir eru samt þeirrar skoðunar að hópurinn sé veikari nú en hann var fyrir ári. Aðrir telja það rangt mat. Inn hafi komið leikmenn sem auki gæði hópsins til muna.

Þarna er auðvitað vísað til Bradley Barcola, Victor Muñoz og Jérémy Jacquet, sem keyptur var í janúar en kom til Liverpool í vor, auk lánsmannsins Ronald Araujo.

Ifeanyi Ndukwe (ungi miðvarðartrukkurinn), Lucca Brughmans (markvörður frá Genk) og Djylian N'Guessan (kantmaður frá St Etienne) koma svo allir á næsta ári.

Dómur kveðinn upp í vor
Hver arfleifð Hughes kemur til með að verða er ekki hægt að meta fyrr en í lok leiktíðar. Titilvörnin í fyrra var andlaus og Andoni Iraola hefur ekki beint verið hjálpað um of í sumar við uppbyggingu liðsins. Enda hefur hann margítrekað að hópurinn sé of þunnskipaður til að mæta álagi á langri leiktíð.

Þegar hann var spurður hvort hann væri sáttur með leikmannahópinn, sem hann hefði í höndunum, svaraði Iraola með mjög tvíræðum hætti:

“Þetta eru þeir leikmenn sem félagið telur að henti okkur best.”

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet