Varnarleikur Liverpool á leiktíðinni, sem senn er á enda, hefur valdið mörgum heilabrotum.
Ósamstæð varnarlína, getuhrun lykilmanna, ítrekuð meiðsl - að viðbættum ótal einstaklingmistökum - hefur orðið þess valdandi að Liverpool hefur fengið á sig 72 mörk í öllum mótum.
Segi og skrifa: Sjötíuogtvö!
Liðið hefur fengið á sig 47 mörk í Premier League - og enn eru þrír leikir eftir - fékk á sig 13 mörk í Champions League, 6 í FA Cup, 4 í Carabao Cup og 2 í leiknum um samfélagsskjöldinn í ágúst.
Þetta er í fyrsta sinn frá leiktíðinni 2015-16 sem liðið fær á sig 70 mörk eða meira. Slíkt hefur reyndar aðeins gerst 18 sinnum í 134 ára sögu félagsins.
Á sama tíma og varnarmenn flestra liða fórna sér til að blokkera skot andstæðingsins virðist það orðið lenska hjá Liverpool að snúa afturendanum að andstæðingnum þegar hann býr sig undir að spyrna að marki. Van Dijk fer fremstur í þessum flokki.
Þessi aðferð, að verjast með rassinum, hefur óneitanlega reynst hörmulega þegar henni er bætt ofan á alla aðra þá þætti sem skýra mega ömurlegan varnarleik Liverpool á leiktíðinni.
Að verjast með rassinum
... virðist það orðið lenska hjá Liverpool að snúa afturendanum að andstæðingnum þegar hann býr sig undir að spyrna að marki.
No comments yet