Samkvæmt heimildum okkar í Liverpool eru líkur taldar á því að Adam Wharton, sem hefur verið með eftirsóttari miðvallarleikmönnum í Premier League, gangi til liðs við Liverpool í sumarglugganum.
Gangi samningar eftir er jafnvel reiknað með því að Harvey Elliott fari til Crystal Palace, sem hluti af kaupverði Whartons.
Wharton er aðeins 22 ára gamall og hefur slegið í gegn hjá Palace sem keypti hann frá Blackburn Rovers fyrir tveimur árum.
Þessi félagaskipti eru auðvitað háð samþykki allra aðila en Elliott er illa brenndur eftir “lánið” hjá Aston Villa á síðustu leiktíð, þar sem hann lék sárafáa leiki. Með þeim hætti kom Villa sér undan að virkja sjálfkrafa ákvæði um kaup á leikmanninum eftir tiltekinn fjölda leikja.
Andoni Iraola er rétt að kynnast leikmannahópnum hjá Liverpool og skv. okkar heimildum gæti allt eins farið svo að hann vildi halda Elliott og gefa honum alvöru tækifæri, án þess að það hefði áhrif á hugsanleg kaup á Wharton.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet