Af hverju samdi Salah við Liverpool til tveggja ára sl. sumar ef hann var þá þegar ósáttur við það ástand sem hann taldi vera á Liverpool-liðinu?
Margir velta þessu óneitanlega fyrir sér í öllu moldviðrinu sem þyrlað hefur verið upp vegna færslu Salah á X (áður Twitter) um daginn þar sem hann sendi lítt dulbúnar sneiðar á Arne Slot og þá sem stýra knattspyrnumálum á Anfield, þ.e. Richard Hughes og Michael Edwards.
Eins og flestir vita samdi Salah svo um að rifta samningi sínum eftir eitt ár og tilkynnti að hann myndi yfirgefa Anfield í vor.
Sú ákvörðun félagsins að fallast á þessa ósk hans kom flestum í opna skjöldu. Hún hefur hins vegar rennt stoðum undir þær kenningar að ráðamenn félagsins (aðrir en Slot) taki fullt mark á gagnrýni Salah þótt ekkert sé látið uppi um það opinberlega.
Af hverju samdi Salah til tveggja ára?
Sú ákvörðun félagsins að fallast á þessa ósk hans kom flestum í opna skjöldu.
No comments yet