Við birtum fyrir nokkru dögum færslu, þar sem ýjað var að því að á meðal leikmanna sem yfirgæfu Liverpool í sumar væru Alisson Becker, Ibrahime Konate, Joe Gomez, Curtis Jones, Wataru Endo og Federico Chiesa.
Í dag bendir hins vegar allt til þess að óbreyttu að Alisson Becker verði áfram hjá Liverpool út framlengdan samningstíma eða til vors 2027 þrátt fyrir að hann hafi lýst yfr áhuga á að ganga til liðs við Juventus.
Nú hefur nafn Alexis Mac Allister bæst í brottfararhópinn, hvort sem það gengur svo eftir eða ekki. Þessar vangaveltur koma samt kannski ekki svo mjög á óvart þótt Mac Allister sé samningsbundinn Liverpool til 2028.
Mac Allister, sem var að glíma við meiðsl í rúma þrjá mánuði á síðasta ári (maí-ágúst) átti verulega slaka nýliðna leiktíð og virtist á köflum hreinlega vera í mjög lélegu úthaldi í kjölfar meiðslanna. Litla breyingu var að sjá þar á eftir því sem á leiktíðina leið.
Mac Allister varð heimsmeistari með Argentínu 2022 og kom til Liverpool sumarið 2023 ásamt Dominik Szoboszlai, Ryan Graverberch og Wataru Endo eftir að Jordan Henderson, Fabinho Tavares, James Milner og Naby Keita yfirgáfu allir Liverpool, ásamt þeim Roberto Firmino og Alex Oxlade-Chamberlain.
Frammistaða Mac Allister leiktíðina 2023-2024 og aftur titilleiktíðina 2024-2025 var oftar en ekki frábær en síðasta leiktíð fer ekki í minningabókina. Þrátt fyrir slakt form lék hann samt alla leikina i Premier League nema einn. Skoraði 2 mörk og átti 4 stoðsendingar.
No comments yet