Ár liðið frá dauða Diogo Jota og bróður hans

Enginn efast um að dauði Jota hafði gífurleg áhrif á undirbúning leikmanna Liverpool fyrir síðustu leiktíð enda var hann einstaklega vinsæll innan leikmannahópsins.

Ár er í dag liðið frá því Diogo Jota og bróðir hans, Andre Silva, létust í hörmulegu bílslysi á norður-Spáni er þeir voru á leið til Santander, þar sem þeir ætluðu að taka ferju til Englands. Jota hafði undirgengist litla aðgerð og var ráðlagt að fljúga ekki

Liverpool Football Club afhjúpaði i gær fallegan minnisvarða við Anfield um þá bræður undir yfirskriftinni “Forever 20” en á stalli listaverksins er stýripinni fyrir tölvuleik. Jota fagnaði mörkum sínum með því að setjast í grasið og hreyfa fingur eins og hann væri að handleika stýripinna.

Þessi hörmulegi atburður skók ekki aðeins fjölskylduna og alla þá sem tengjast Liverpool Football Club, heldur teygðu viðbrögðin sig langt út fyrir þann ramma, m.a. til félaga Jota í portúgalska landliðinu og reyndar um heim allan.

Enginn efast um að dauði Jota hafði gífurleg áhrif á undirbúning leikmanna Liverpool fyrir síðustu leiktíð enda var hann einstaklega vinsæll innan leikmannahópsins.

Þegar slysið varð þann 3. júlí í fyrra voru aðeins 11 dagar liðnir frá því Diogo gekk að eiga Rute Cardoso en þau áttu saman þrjú lítil börn.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet