Araújo frá Barcelona til Liverpool á láni til eins árs

Á sínum besta degi er hann frábær varnarmaður en á það til að láta kappið bera sig ofurliði með tilheyrandi mistökum.

Það kom óneitanlega á óvart í gærkvöld þegar tilkynnt var að Úrugvæinn Ronald Araújo kæmi til Liverpool á láni frá Barcelona út komandi leiktíð. Liverpool getur breytt láninu í kaup ef áhugi er á slíku og samningar nást.

Araújo er 27 ára gamall og hefur verið hjá Barcelona frá árinu 2018 en ekki leikið nema rúman helming leikja liðsins í La Liga.

Araújo gætur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður en báðar stöður eru mjög tæpt mannaðar hjá Liverpool.

Á sínum besta degi er hann frábær varnarmaður en á það til að láta kappið bera sig ofurliði með tilheyrandi mistökum. “Hann er svona Darwin Núñez varnarmannanna,” var honum lýst af einum sparkspekingi.

Reikna má með að hann byrji við hlið Van Dijk en svo er að sjá hverng yngri miðverðir liðsins koma til eftir meiðsl. Við erum þar að tala um Giovanni Leoni, Jérémy Jacquet og svo auðvitað Joe Gomez, sem hefur verið makalaust óheppinn með meiðsl.

Liverpool á svo þá Mor Talla Ndiaye og Ifeanyi Ndukwe uppi í erminni í miðvarðarstöðurnar en sá síðasttaldi stóð sig mjög vel í æfingleikjum sumarsins þótt hann hafi ekki leikheimild á komandi leiktíð.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet