“Auðvitað vildi ég að við lykjum leiktíðinni með þremur sigrum en það myndi samt ekki þagga niður í gagnrýnisröddum. Við þyrftum mun lengri kafla hagstæðra úrslita til þess.”
Svo mörg voru þau orð hjá Arne Slot á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Chelsea á morgun.
Þessi ummæli Slot sýna ótvírætt að hann skynjar ekki eðli þeirrar gagnrýni sem beint er að honum og liðinu. Stuðningsmenn Liverpool hafa gengið um djúpa dali og hæstu fjöll og viðurkenna manna fyrstir þegar liðið þeirra á ekki sigur skilinn í leik.
Tap er ekki það sama og tap. Að tapa leik þar sem leikmenn leggja allt í sölurnar og keyra sig í þrot er vissulega sárt en um leið virðingarvert. Menn geta ekki gert betur en að gefa sig allan í leikinn.
En að tapa leik, þar sem liðið þitt virðist hreinlega ekki nenna að mæta til leiks er ekki aðeins niðurlægjandi heldur argasta vanvirðing gagnvart stuðningsmönnum. Um leið bendir það til þess að þjálfari/framkvæmdastjóri tali fyrir daufum eyrum í búningsklefanum.
Því miður hafa allt of mörg töp Liverpool í vetur verið lituð af þessum þáttum.
Hvort Slot kýs meðvitað að horfa framhjá þessu er svo önnur saga. Mörg ummæli hans benda því miður til þess.
Þarf meira til að þagga niður í gagnrýnisröddum
Hvort Slot kýs meðvitað að horfa framhjá þessu er svo önnur saga. Mörg ummæli hans benda því miður til þess.
No comments yet