Ráðning Andoni Iraola, fyrrum framkvæmdastjóra Bournemouth, leggst almennt vel í stuðningsmenn Liverpool sem þrá þessa dagana ekkert meira en skemmtilegri fótbolta en boðið var upp á hjá Arne Slot.
Iraola fylgir þeirri hugmyndafræði að um leið og menn hans vinna knöttinn þá eigi þeir fyrst að athuga staðsetningu markvarðar ef hægt væri að koma honum i opna skjöldu af löngu færi. Sé það ekki valkostur er leikmönnum uppálagt að finna stystu leiðina að marki andstæðingsins í eins fáum sendingum og hægt er.
Þetta minnir óneitanlega á Jürgen Klopp enda er hann í hávegum hafður hjá Iraola, sem leggur meira upp úr því að nýta boltann til sókar þegar liðið er með hann fremur en að lúra á honum með hálfgerðum bílastæðabolta.
Sparkspekingar hafa þó efasemdir um tvennt hjá Iraola. Hann hefur aldrei stjórnað stórliði og hefur heldur aldrei verið með lið í krefjandi deild og Evrópukeppni samtímis, þar sem leikið er þrisvar i viku.
Þá velta menn því eðlilega upp hvernig hann tekt á við afturliggjandi vörn (e. low block) andstæðinganna á Anfield. Slíkt var honum framandi á Vitality Stadium.
Sparkspekingar telja Iraola jafnframt þurfa mun stærri hóp en Liverpool var með á síðustu leiktíð, ella keyri hann menn í þrot.
SLOT EKKI EINN ÁBYRGUR
Að sjálfsögðu ber Arne Slot ekki einn ábyrgð á því hvernig nýliðin leiktíð þróaðist hjá Liverpool. Lykilleikmenn voru langt frá sínu besta eftir undirbúningstímabil sem litaðist af ótímabæru andláti Diogo Jota og sorginni sem þvi fylgdi.
Ekki bættu svo ítrekuð alvarleg meiðsl úr skák. Leoni, Endo og Isak eru rétt að koma til baka úr erfiðum meiðslum og Ekitike og Bradley koma tæpast ekki inn í hópinn á ný fyrr en eftir áramót.
Andy Robertson lýsti ástandininu á undirbúningstímabilinu þannig í viðtali við gömlu goðsögnina Ian Wright á YouTube-rásinni The Overlap:
“Fótboltinn skipti engu máli. Enginn okkar var hvorki í andlegu né líkamlegu ásigkomulagi til þess að takast á við erfiðar æfingar á undirbúningstímabilinu. Þjálfararnir reyndu að móta æfingarnar að hugarfari hvers og eins en það hafði bara enginn áhuga á að æfa eitt eða neitt. Við vorum allir eins og í leiðslu.”
No comments yet