Barcola til Liverpool en hver er verðmiðinn?

Fréttir um að Bradley Barcola hjá PSG hafi náð samkomulagi við Liverpool um kaup og kjör tröllríða nú netmiðlum, nú síðast frá L’Equipe, hinum þekkta franska íþróttamiðli.

Orðrómur um Barcola hefur verið á kreiki eftir að ljóst varð að ekkert yrði af komu Yan Diomande frá RB Leipzig. Hann valdi á endanum Real Madrid þrátt fyrir að talið væri öruggt að hann færi til PSG.

Ekkert samkomulag er þó enn á milli félaganna sjálfra þótt Diomande hafi samþykkt þann samning sem Real Madrid bauð honum.

Hvort af því verður að Barcola hafni hjá Liverpool veltur svo auðvitað á því hvernig tekst að semja við PSG en Barcola hefur hafnað endurnýun samnings þar.

Rætt hefur verið um að líklega nægi ekkert minna en 105-120 milljónir punda fyrir vængmanninn fótfráa en reynslan frá í fyrra sýnir að eigendur Liverpool eru tilbúnir til að punga út fyrir réttum leikmanni.

No comments yet