Barcola til Liverpool frá PSG fyrir 110 millj. punda

Munnlegt samkomulag hefur náðst á milli Liverpool og PSG um Bradley Barcola, sem mun ganga til liðs við Liverpool fyrir um 110 milljónir sterlingspunda.

Í eldri frétt okkar um Barcola sagði m.a.: “Hvort af því verður að Barcola hafni hjá Liverpool veltur svo auðvitað á því hvernig tekst að semja við PSG en Barcola hefur hafnað endurnýun samnings þar.

Rætt hefur verið um að líklega nægi ekkert minna en 105-120 milljónir punda fyrir vængmanninn fótfráa en reynslan frá í fyrra sýnir að eigendur Liverpool eru tilbúnir til að punga út fyrir réttum leikmanni.”

Hvort þetta munnlega samkomulag heldur þegar kemur að undirritun samnings er svoallt önnur saga en PSG hefur sagst vilja 140 millj. punda fyrir Barcola.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet