Fátt bendir nú til annars en að Curtis Jones yfirgefi Liverpool í sumar. Inter Milan hefur sýnt honum áhuga en einnig lið í ensku úrvalsdeildinni.
Hvað sem olli því á sínum tíma er ljóst að Jones og Arne Slot eiga ekki skap saman. Viðræðum á milli Jones og ráðamanna Liverpool um nýjan samning hefu ekkert miðað áfram og ljóst að Jones vill komast burt.
Það vakti óskipta athygli í lokaleik tímabilsins á sunnudag, að Jones hafði ekki einu sinni fyrir því að fagna markinu sem hann skoraði eftir sendingu frá Mohamed Salah.
Ef Jones fer, sem nánast má telja borðleggjandi, bætist hann í hóp “heimamanna” sem hafa verið að yfirgefa Liverpool. Á meal annarra má nefna Trent Alexander-Arnold, Harvey Elliott, Tyler Morton og Jarrell Quansah auk fleiri minni spámanna.
Óneitanlega sérstök þróun, þar sem Elliott, Morton og Quansah hefðu getað lagt sitt af mörkum á nýliðinni leiktíð. Trent vildi auðvitað fara.
Curtis Jones vill fara frá Liverpool
Það vakti óskipta athygli í lokaleik tímabilsins á sunnudag, að Jones hafði ekki einu sinni fyrir því að fagna markinu sem hann skoraði eftir sendingu frá Mohamed Salah.
No comments yet