Diomande efstur á kantmannalistanum hjá Liverpool

Forráðamenn Liverpool leita nú af krafti að öflugum og fljótum kantmönnum en nýliðin leiktíð afhjúpaði illilega veikleika liðsins á þessum svæðum.

Sem stendur er aðaláherslan á Yan Diomande frá RB Leipzig en Bradley Barcola hjá PSG er einnig inni í myndinni. Einhverjir telja að félagið muni reyna við þá báða það er líkast til óskhyggja fremur en annað.

Önnur nöfn sem heyrst hafa í kantmannaleitinni eru Yakuba Minteh hjá Brighton og Bazoumana Touré hjá TSG Hoffenheim.

Þá skilst okkur að Adam Wharton, miðvallarleikmaður Crystal Palace, sé sá leikmaður sem Liverpool vill ná í til að þétta miðjusvæðið en óneitanlega var ekki vanþörf þar á á nýliðinni leiktíð.

Crystal Palace vann Sambandsdeildina í gær og okkur skilst að viðræður um kaup á Wharton fari strax í gang.

Engar fréttir er hins vegar enn að hafa af leit Liverpool að öflugum hægri bakverði en sú staða var meiriháttar höfuðverkur á síðustu leiktíð.

No comments yet