Samkvæmt okkar heimildum í Liverpool ætlar félagið að krækja í Yan Diomande frá RB Leipzig, nánast sama hvað það kostar.
Verðmiðinn á Diomande er talinn 100+ milljónir punda en Liverpool býður honum hærri laun en PSG, sem einnig er mjög áhugasamt um hann. Þess má geta að Leipzig borgaði ca. 17 millj. punda fyrir hann í fyrra.
Eftir óvænt kaup á Victor Muñoz töldu flestir að Liverpool myndi leggja á hilluna áform um að fá Bradley Barcola frá PSG. Okkar heimildir herma að það sé alls ekki útilokað að hann endi líka á Anfield - en þó ekki fyrr en seinna í sumar.
Ef Barcola og Diomande bætast við þá vængmenn sem fyrir eru; Muñoz , Rio Ngumoha og Coady Gakpo þá er Liverpool komið með fimm vængmenn. Gakpo hefur leikið mjög vel með Hollendingum á HM en er samt talinn líklegur til að yfirgefa Liverpool.
Af Curtis Jones, sem flestir hafa reiknað með að yfirgefi Liverpool, er það að frétta að Inter Milan þumbast enn við að nálgast uppsett verð þrátt fyrir að hafa verið með hann í sigtinu frá því í janúarglugganum.
No comments yet