Diomande til PSG og Barcola frá PSG til LFC?

Yfirlýsingar Yan Diomande, hins eftirsótta vængmanns RB Leipzig, benda eindregið til þess að hann líti ekki á Liverpool sem væntanlegan vinnuveitanda þrátt fyrir mikinn áhuga á honum á Merseyside.

Hugur hans stendur klárlega til Evrópumeistara PSG ef eitthvað er marka yfirlýsingar hans, en Frakkarnir hafa sýnt honum mikinn áhuga, rétt eins og Liverpool.

Verðmiðinn á Diomande er talinn 100+ milljónir punda og ólíklegt er að Liverpool leggi í þriðja sinn á einu ári út slíkar fúlgur fyrir einn leikmann, ekki síst í jósi þess að leikmenn yfirgefa nú Liverpool í röðum án þess að greiðsla komi fyrir þá.

Fari Diomande til PSG eru taldar líkur á því að Liverpool reyni að krækja í hinn 23 ára Bradley Barcola frá PSG. Bayern Munchen hafði mikinn áhuga á honum fyrir ári en samningar tókust ekki.

Bayern fékk hins vegar Luis Diaz frá Liverpool í staðinn og hann átti frábæra leiktíð í Bæjaralandi.

No comments yet