Efasemdir um Slot voru komnar strax í október

Eftir ljóta skelli á Anfield í nóvember, 0:3 gegn Forest og 1:4 gegn PSV Eindhoven í vikunni á eftir, hitnaði mjög undir Slot.

Svo virðist sem efasemdir hafi verið komnar um Arne Slot strax í október í ljósi þeirrar tölfræði, sem lögð er til grundvallar frammistöðu leikmanna og meira og minna er byggt á í allri leikgreiningu.

Michael Edwards og hans tölfræðiteymi vildi grípa í taumana þá þegar en aðrir í stjórnunarteyminu vildu gefa Slot meiri tíma. Eftir ljóta skelli á Anfield í lok nóvember, 0:3 gegn Forest og 1:4 gegn PSV Eindhoven í vikunni á eftir, hitnaði mjög undir Slot.

Mohamed Salah kom svo með bombu-yfirlýsingu eftir 3:3 jafnteflið á Elland Road í byrjun desember og sakaði félagið um að “kasta sér undir rútuna” í leit að blóraböggli fyrir slæmu gengi. Þarna var orðið ljóst að eitthvað verulega mikið var að.

Þjálfurum yngri liðanna fannst viðmót Slot til yngri leikmanna vera ákaflega óuppörvandi. Hann vildi t.d. senda Rio Ngumoha á lán til annars félags og sá hann ekki fyrir sér sem hluta af leikmannahópi aðalliðsins. Þessi vantrú á yngri leikmönnum ásamt ýmsum öðrum þáttum gróf undan honum smám saman.

Svo virðist skv. heimildum að ráðamenn Liverpool hafi strax eftir áramótin sett sig í samband við umboðsmenn Sebastian Hoeneß, Cesc Fabregas og Xabi Alonso til að kanna hug þeirra ef Slot yrði sagt upp.

Þegar Andoni Iraola tilkynnti svo að hann myndi ekki framlengja samning sinn við Bournemouth kom hann inn í myndina sem valkostur.

Richard Hughes, yfrmaður knattspyrnumála (e. Sporting director) hjá Liverpool, var einmitt í sambærilegri stöðu hjá Bournemouth (e. Technical director) þegar Iraola var ráðinn þangað. Þeir þekkjast því vel.

Opinberlega fór lítið fyrir yfirlýsingum forráðamanna félagsins um stuðning við Arne Slot en vel valdir blaðamenn fengu ítrekað að heyra það úr innsta hring að Slot væri “traustur í sessi.”

Annað kom á daginn í gær.

No comments yet