Þegar öll miðjan hvarf nánast á einu bretti

Jordan Henderson, Fabinho Tavares, James Milner og Naby Keita yfirgáfu allir Liverpool. Auk þessara hurfu Roberto Firmino og Alex Oxlade-Chamberlain á braut.

Þrjú ár eru nú liðin frá því svo gott sem öllu miðvallarteymi Liverpool var sópað út á einu bretti. Mörgum þótti þetta misráðið en margvíslegar ástæður lágu að baki þessari breytingu.

Gini Wijnaldum, einn af vanmetnustu leikmönnum liðsins, yfirgaf Liverpool sumarið 2021 eftir fimm ára feril þar og gekk til liðs við PSG.

Afar krefjandi leiktíð 2021-22, þar sem Liverpool eltist við hið óhugsandi; að vinna alla fjóra titlana sem voru í boði, tók mikinn toll af leikmönnum. Liverpool vann Carabao Cup og FA Cup, en varð stigi á eftir Manchester City í Premier League (City fékk 93 stig, Liverpool 92) og tapaði loks úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid, 0:1. Þau úrslit voru grátleg því Liverpool var mun betra liðið í leiknum.

Liverpool átti erfitt uppdráttar leiktíðina 2022-2023 og hafnaði loks í 5. sæti með 67 stig. Lykilmenn voru margir langt frá sínu besta og það sást glöggt í leikjum liðsins.

En fáir áttu samt von á því sem við tók eftir leiktíðina. Jordan Henderson, Fabinho Tavares, James Milner og Naby Keita yfirgáfu allir Liverpool. Auk þessara hurfu Roberto Firmino og Alex Oxlade-Chamberlain á braut. Stór skörð höggvin.

Keita, sem var dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins þegar hann var keyptur, átti við ítrekuð meiðsl að stríða. Var aðeins í byrjunarliði í 49 leikjum í Premier League á þeim 5 árum sem hann var á Anfield.

Í stað kjarnans sem hvarf af miðjunni sumarið 2023 fékk Liverpool þá Alexis Mac Allister, Dominik Szoboszlai, Ryan Graverberch og Wataru Endo. Sá síðasttaldi yfirgefur Liverpool væntanlega í sumar og ekki er loku fyrir það skotið að einhver hinna þriggja geri það líka.

No comments yet