Elliott að losna úr frystinum hjá Villa

Í huga okkar er þetta hörmulegt dæmi um "man-management" hjá Liverpool.

Framtíð Harvey Elliott virtist svo sannarlega björt í fyrrasumar. Hann var útnefndur maður mótsins þegar enska U-21 landsliðið vann Evrópumeistaramótið eftir úrslitaleik gegn Þýskalandi. 

Svo ótrúlega sem það hljómar tæpu ári síðar er ferill hans í algjöru frosti. 

Liverpool lánaði Elliott til Aston Villa - hver sem svo réði þeirri ákvörðun - fyrir leiktíðina með þeirri klásúlu að þegar hann hefði spilað 10 leiki virkjaðist ákvæði um að Villa keypti hann á 30 milljónir punda. 

Svo er helst að skilja að Unai Emery, stjóri Villa, hafi alls ekki viljað fá Elliott í sínar raðir - og alls ekki að Villa keypti hann. Fyrir vikið er Elliott í frystikistunni hjá Villa eftir að hafa aðeins verið notaður í 9 leikjum á leiktíðinni. 

Leikirnir verða ekki fleiri og Elliott snýr því aftur til Liverpool í sumar. Heil leiktíð ungs leikmanns algerlega ónýt, ekki vegna meiðsla heldur vegna hreinna og klárra viðskiptahagsmuna Aston Villa.

Í huga okkar er þetta hörmulegt dæmi um "man-management" hjá Liverpool. Hvað bíður hans í sumar er svo önnur ráðgáta.

Elliott, rétt eins og leikmenn á borð við Jarrell Quansah og Tyler Morton - sem báðir hafa átt frábærar leiktíðir með Bayer Leverkusen og Lyon - hefðu svo sannarlega aukið dýpt leikmannahóps Liverpool á þeirri martraðar-leiktíð sem senn er á enda.

No comments yet