Fréttir um yfirvofandi brotthvarf Ibrahima Konate frá Liverpool þegar samningur hans rennur út 30. júní koma kannski ekki ýkja mikið á óvart.
Fréttir af kyrrstöðu í samningaviðræðum hans við Liverpool hafa dúkkað upp reglulega eftir áramót, rétt eins og í tilviki Curtis Jones, sem nú er orðaður við Inter Milan.
Sá sem einna oftast er nefndur sem arftaki Konate er Jan Paul Van Hecke, miðvörður Brighton. Van Hecke er 26 ára og hefur verið hjá Brighton frá tvítugu en síðasta ár samnings er framundan.
Gangi hann til liðs við Liverpool yrði hann fimmti Hollendingurinn í hópnum en fyrir eru þeir Virgil van Dijk, Cody Gakpo, Ryan Graverberch og Jermie Frimpong.
Liverpool er svo með tvo unga og stórefnilega miðverði “í frysti” ef svo má orða það.
Giovanni Leoni, sem keyptur var frá Parma fyrir 30 milljónir punda í fyrra, sleit liðbönd í hné strax í fyrsta leik sínum þann 23. september.
Jeremie Jacquet var svo keyptur frá Rennes í janúar fyrir 55 millj. punda en meiddist illa á öxl strax í kjölfar kaupanna. Báðir verða klárir fyrir undirbúningstímabilið seinna í sumar.
Leoni verður tvítugur í desember en Jacquet 21 árs í sumar.
No comments yet