Fagnaðarfundir í vináttuleik Brasilíu og Egyptalands

Það urðu sannkallaðir fagnaðarfundir hjá núverandi og fyrrverandi leikmönnum Liverpool í vináttuleik Brasilíu og Egyptalands í Bandaríkjunum í gærkvöld.

Alisson Becker hóf leikinn í markinu hjá Brasiliu en Fabinho Tavares og Mohamed Salah voru á bekknum. Fabinho kom inn á hjá Brasilíu í hálfleik fyrir Casemiro en Salah sat á bekknum allt þar til á 63. mínútu.

Brasilía vann leikinn 2:1.

Fabinho yfirgaf Liverpool sumarið 2023 ásamt nánast öllum miðjumönnum liðsins en Salah lék sinn síðasta leik fyrir Liverpool þann 24. maí sl. Alisson er á samningi hjá Liverpool út næstu leiktíð.

No comments yet