Fjórfaldur Manchester-skellur - sá fyrsti í 113 ár!

" ... ef það er einhver möguleiki á að misstíga sig þá finna menn alltaf einhverja leið til þess."

Tap Liverpool gegn Manchester United á Old Trafford um helgina kom kannski ekki svo mjög á óvart, a.m.k. ef horft er til þess hvernig leiktíðin hefur þróast.

Liverpool-liðið er þannig innstillt nú um stundir að ef það er einhver möguleiki á að misstíga sig þá finna menn alltaf einhverja leið til þess. Ef ekki einhver tiltekinn leikmaður, þá með sameiginlegu átaki nokkurra samherja. Þannig var leikurinn á Old Trafford.

Það sem gerði tapið kannski enn leiðinlegra út frá sögulegu sjónarhorni er sú staðreynd að þetta var fjórða tap Liverpool gegn Manchester City og United í deildinni á þessari leiktíð.

Fjórfaldur Manchester-skellur eins og þessi hefur ekki gerst í 113 ár!

2 Comments

  1. Jón Karl Einarsson
    Hvert er orðið á götum Liverpool um þessar mundir varðandi stjórann?
  2. Siggi Sverris
    Það eru ýmsar kenningar á lofti. Stuðningsmenn vilja Alonso en félagið hefur efasemdir um hann, a.m.k. á yfirborðinu. Flest bendir því til að Slot verði áfram en ástandið er vægast sagt dapurt nú um stundir. Eitthvað þarf að beytast.