Aðeins rúma klukkustund tekur að aka á milli fæðingarstaða fjögurra þekktra knattspyrnustjóra í Premier League í Baskalandi á Norður-Spáni.
Andoni Iraola, sem væntanlega tekur við starfi knattspyrnustjóra Liverpool, er fæddur í Usurbil, skammt suður af San Sebastian. Frá Usurbil er um 25 mínútna akstur til Tolosa, þar sem Xabi Alonso fæddist. Alonso tók nýlega við Chelsea eins og flestum er kunnugt.
Frá Usurbil er svo aðeins 18 mínúna akstur til San Sebastian, þar sem Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er fæddur. Þaðan eru svo um 25 mínútur í bíl til Hondarribia en þar fæddist Unay Emery, framkvæmdastjóri Aston Villa.
Allir þessir stjórar áttu leikmannaferil á heimaslóðum. Þrír þeirra með Real Sociedad, þeir Alonso, Arteta og Emery. Iraola var hins vegar nánast allan sinn feril hjá Athletic Club í Bilbao.
No comments yet