"Fótboltinn skipti engu máli"

Ótímabært andlát Diogo Jota og bróður hans, Andre Silva, hafði að sögn Andy Robertson meiri áhrif á undirbúning leikmanna Liverpool fyrir leiktíðina, sem lýkur á sunnudag, en nokkurn getur órað fyrir.

“Fótboltinn skipti engu máli. Enginn okkar var hvorki í andlegu né líkamlegu ásigkomulagi til þess að takast á við erfiðar æfingar á undirbúningstímabilinu. Þjálfararnir reyndu að móta æfingarnar að hugarfari hvers og eins en það hafði bara enginn áhuga á að æfa eitt eða neitt. Við vorum allir eins og í leiðslu,” sagði Robertson í viðtali við gömlu goðsögnina Ian Wright á YouTube-rásinni The Overlap.

Robertson sagði ekki hægt að undirbúa neinn fyrir það áfall sem liðið varð fyrir. “Eftir að hafa fagnað tilinum með liðsfélögum mínum í maí í fyrra hitti ég þá ekki aftur fyrr en í flugvélinni á leiðinni í jarðarför Diogo.”

“Þetta hefur reynst okkur öllum mjög erfitt. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við mennskir en þetta eitt og sér afsakar samt ekki lélega frammistöðu okkar í vetur. Þar kemur fleira til,” sagði Robertson og vísaði þar m.a. til mikilla breytinga á leikmannahópum og ótrúlegrar meiðslahrinu.

No comments yet