Joe Gomez og Ryan Graverberch eru algerlega á öndverðum meiði gagnvart baulinu sem glumdi við á Anfield í gær, sér í lagi við útafskiptinu Ngumoah fyrir Isak en einnig í lok leiksins gegn Chelsea.
Graverberch,sem skoraði frábært mark, kvartaði undan baulinu í frétt á BBC og fannst það ósanngjarnt.
“Stuðningsmenn verða að styðja okkur í 90 mínútur. Á meðan við fundum fyrir stuðningi þeirra í seinni hálfleik gátum við pressað vel. Við þurfum á þeim (stuðningsmönnum) að halda. Vonandi sleppa þeir að baula á okkur í lokaleikjunum.”
Joe Gomez, sem kom inn á seint í leiknum, var hins vegar á allt annarri skoðun í umfjöllun sem James Pearce birti á The Athletic.
“Við sem erum reyndari skiljum þessi viðbrögð fullkomlega. Auðvitað er þetta sárt þegar við höfum upplifað svo margt jákvætt hér. Þessi viðbrögð stuðningsmanna snúast ekki bara um þennan leik, heldur eru þetta vonbrigði með leiktíðina alla. Þeir borga sig inn á leikina og hafa fullan rétt á þessu.”
Gomez og Graverbech á öndverðum meiði um baulið
"Þeir borga sig inn á leikina og hafa fullan rétt á þessu.”
No comments yet