Gæti Iraola orðið arftaki Arne Slot?

Hvort hann er svo rétti maðurinn, ef til þess kemur, er allt önnur saga.

Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Bournemouth, tilkynnti fyrir nokkrum vikum að hann hygðist ekki framlengja samning sinn við félagið eftir þriggja ára dvöl á suðurströnd Englands, þar sem hann hefur náð frábærum árangri.

Mitt í öllum sögusögnum um framtíð Arne Slot hjá Liverpool kemur nafn Iraola upp aftur og aftur. Hvort hann er svo rétti maðurinn, ef til þess kemur, er allt önnur saga.

Iraola fer frá frábæru búi hjá Bournemouth og með 1:1 jafntefli gegn Manchester City í gær tryggði Bournemouth sér Evrópusæti í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þetta var jafnframt 17. leikur liðsins í röð án taps í Premier League.

Það gerir árangur Bournemouth enn eftirtektarverðari en ella að félagið seldi 5 af fastamönnum liðsins eftir leiktíðina 2024-2025.

Milos Kerkez fór til Liverpool, Dean Huijsen til Real Madrid, Ilya Zabarnyi til PSG, Dango Outtara til Brentford og loks Antoine Semenyo til Manchester City.

No comments yet