"Ég hef fulla trú á að ég verði enn við stjórnvölinn hjá Liverpool við upphaf nýrrar leiktíðar í haust," sagði Arne Slot á blaðamannafundi í morgun í aðdraganda leiksins gegn Aston Villa annað kvöld. Spurningum rigndi yfir Slot um framtíð hans hjá Liverpool.
"Það sem styður mína skoðun er í fyrsta lagi að ég er samningsbundinn og svo hitt að við höfum átt í miklum samskiptum um sumarið framundan og þær breytingar sem við teljum að séu nauðsynlegar. En auðvitað er það á endanum ekki eingöngu mitt að segja til um framhaldið.”
Slot sagði að vissulega væri leiktíðin, sem senn er á enda, vonbrigði í samanburði við síðustu leiktíð, þar sem Liverpool vann enska meistaratitilinn.
“En ef við berum þessa leiktíð saman við einhverja aðra þá þróast umræðan kannski öðruvísi.” Slot útskýrði ekki frekar hvað hann átti við.
Hann sagði það ekki leynast neinum að núverandi leiktíð hefði reynt á þolrif allra. Ekki bara hans sjálfs og leikmanna, heldur allra sem að félaginu koma - líka stuðningsmanna.
No comments yet