“Liverpool þarf að fara aftur í grunngildin. Fá leikmenn sem hafa hafa það sem þarf að spila fyrir félagið. Ekki viss að það hafi verið gert í fyrra,” segir Hörður Magnússon, best þekktur sem Höddi Magg íþróttafréttamaður og lýsandi, í samtali við anfield.is.
Hörður segir skrýtið andrúmsloft á bakvið tjöldin hjá Liverpool um þessar mundir þótt vissulega blási ferskir vindar um Andoni Iraola. “Iraola þarf stuðning. Hefur hann baklandið í félaginu?” spyr Hörður.
“Brotthvarf Michael Edwards og ístöðuleysi Richard Hughes er ekki ávísun á stöðugleika. Frá því að Hughes tók við hefur hann þráfaldlega verið orðaður við lið í Sádi Arabíu. Hann getur varla verið með hugann við starfið?” segir Hörður og bætir við:
“Eftir sumargluggann í fyrra þá má spyrja hvort hann hafi verið rétti maðurinn í starfið.“
Hörður segir mjög jákvætt að Dominik Szobozlai hafi skrifað undir nýjan samning í vikunni. Það sé skref i rétta átt en meira þurfi til.
“Það er mörgum spurningum ósvarað.”
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet