“Ég finn fyrir fullkomnum stuðningi stjórnenda félagsins og stuðningsmanna.” Þetta lét Arne Slot, aðalþjálfari Liverpool, hafa eftir sér fyrir tæpum mánuði.
Þrátt fyrir að ekki hafi birst nein opinber stuðningsyfirlýsing við hann hafa vel valdir blaðamenn fengið þær upplýsingar frá æðstu stöðum að Slot njóti fullkomins trausts. Hins vegar hefur ekkert formlegt komið frá félaginu sjálfu enda slíkt ekki venjan á Anfield.
Nýleg ummæli Slot sjálfs benda hins vegar til þess að hann sé ekkert allt of viss um framhaldið þrátt fyrir að nánast sé formsatriði að tryggja Liverpool sæti í Meistaradeild Evrópu næsta haust.
Hann orðaði það einhvern veginn þannig að þegar og ef hann færi myndi fólk vonandi minnast titilsins 2025 og framlags hans við að byggja upp nýtt lið í kjölfarið.
Hvað varðar meint traust stuðningsmanna Liverpool þá er Slot á algerum villigötum. Það er svo augljóst að jafnvel hörðustu og tryggustu stuðningsmenn félagsins hafa gefist upp á honum og þeirri aðferðafræði sem hann aðhyllist. Leikmenn virðast sömu skoðunar, a.m.k. er fátt sem bendir til þess að upplegg Slot skili sér til þeirra.
Auðvitað vissu allir að það væri ekki fyrir hvern sem er að feta í fótspor Klopp. Með sama hóp og Klopp skildi eftir sig vannst vægast sagt óvæntur - en fyllilega verðskuldaður - sigur í Premier League í fyrravor.
Gríðarlegt umhleypingasumar í kjölfarið gersamlega riðlaði allri þeirri uppbyggingu sem fyrir var. Allt of miklar breytingar voru gerðar á leikmannahópnum og til að bæta gráu ofan á svart hafa nýir og fokdýrir leikmenn ýmist meiðst eða leikið langt undir væntingum/getu.
Skoðum aðeins breytingarnar sumarið 2025.
Þeir sem fóru (sleppum minni spámönnum):
- Darwin Nunez
- Luis Diaz
- Trent Alexander-Arnold
- Diogo Jota (RIP)
- Harvey Elliott
- Caomhin Kelleher
- Tyler Morton
- Jarrell Quansah
- Ben Doak
- Nat Phillips
Þeir sem komu (sleppum minni spámönnum):
- Giorgi Mamardashvili (keyptur 2024)
- Milos Kerkez
- Jermie Frimpong
- Alexander Isak
- Hugo Ekitike
- Florian Wirtz
- Giovanni Leoni
No comments yet