Iraola fór sjálfur fram á tveggja ára samning

Þeir sem þekkja best til Spánverjans segja þetta mjög lýsandi fyrir metnað hans.

Það hefur komið mörgum í opna skjöldu að samningur Liverpool við Andoni Iraola er aðeins til tveggja ára. Í ljós hefur komið að samningurinn er ekki lengri en raun ber vitni að hans eigin ósk.

Iraola samdi upphaflega við Bournemouth með sama hætti, þ.e. til tveggja ára en eftir fyrsta árið var þriðja árinu bætt við samninginn.

“Ég vil ekki vera hjá félagi bara af því að ég er með samning. Ég vil aðeins vera ef báðir aðilar eru sáttir og vilja halda samstarfinu áfram. Maður þarf að ávinna sér þann rétt á hverri einustu leiktíð,” segir Iraola.

Þeir sem þekkja best til Spánverjans segja þetta mjög lýsandi fyrir metnað hans. Hann leggi allt undir í stað þess að tryggja sér feitan bita ef fimm ára samningi yrði rift eftir tvö ár.

Á móti gefur hann félaginu færi á að segja sér upp án stórkostlegra fjárútláta gangi verkefnið ekki upp. Setur félagið framar sjálfum sér.

Guillem Balague, virtur greinandi og álitsgjafi, telur að Liverpool sé að fá mann sem gefur sig allan í verkefnið, lítur á Klopp sem fyrirmynd hvað varðar leikstíl og setur félagið framar öllu öðru.

No comments yet