Hann var heldur lágstemmdur fyrsti formlegi blaðamannafundur Andoni Iraola hjá Liverpool í fyrradag. Engin skrautsýning toppanna, aðeins blaðafulltrúi félagsins með honum á fundinum.
Iraola var yfirvegaður en fór ekki leynt með að hann vildi fá fleiri leikmenn til liðs við hópinn.
Reynsluboltarnir Mo Salah og Andy Robertson eru á braut ásamt Ibrahima Konate og aðeins þeir Jérémy Jacquet og Victor Muñoz hafa komið í staðinn - Jacquet var reyndar keyptur í janúar en kom ekki fyrr en í sumar.
Slúðurkvörnin snýst auðvitað sem aldrei fyrr og undanfarna daga hafa þrír leikmenn verið orðaðir við Liverpool, sem við höfum ekki minnst á áður.
Haissem Hassan, sem leikur með Real Oviedo í spænsku 2. deildinni - 24 ára gamall egypskur landsliðsmaður sem leikur á hægri kanti. Hassan var einmitt maðurinn sem átti sprettinn langa í aðdraganda annars marks Egypta gegn Argentínu, sem svo sorglega var dæmt af.
Ilya Zabarnyi, sem leikur með PSG, er Iraola að góðu kunnur enda fastamaður í liði Bournemouth tvö fyrstu ár spánverjans þar. Zarbarnyi er sterkur miðvörður frá Úkraínu og vitað er að Iraola er mjög áhugasamur um að klófesta hann frá PSG.
Joao Gomes, leikmaður Wolves og brasilíska landsliðsins, hefur einnig verið nefndur sem valkostur. Gomes leikur á miðjunni og yrði hugsaður sem “sexa” ef af kaupum yrði. Arsenal er einnig mjög áhugasamt um hann.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet