Prince Cissé hefur nýverið skrifað undir fyrsta atvinnumannasamning sinn hjá Liverpool eftir flotta nýliðna leiktíð með liði félagsins, skipuðu leikmönnum 18 ára og yngri, eftir að hann var færður úr stöðu framherja í stöðu miðvarðar.
Prince þessi er sonur Djibril Cissé, sem lék með Liverpool á árunum 2004 til 2006. Cissé varð m.a. Evrópumeistari með Liverpool vorið 2005 og kom inn á fyrir Milan Baros þegar skammt var eftir af venjulegum leiktíma í úrslitaleiknum ógleymanlega gegn AC Milan í Istanbúl.
Nái Prince Cissé einhvern tíma að brjóta sér leið inn í aðallið Liverpool komast hann og pabbi hans í fámennan hóp feðga sem hafa leikið með Liverpool.
Dean Saunders lék með Liverpool 1991-1992 en faðir hans, Roy, var á mála hjá Liverpool í meira en áratug eða frá 1948 til 1959.
Þá lék Paul Ince með Liverpool 1997-1999 og sonur hans, Tom, náði einu sinni inn í aðallið Liverpool.
Sá eini leikur varð sögulegur “for all the wrong reasons” eins og sagt. Liverpool tapaði þá á Anfield fyrir Northampton Town í september 2010 í deildabikarnum eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Tom Ince kom inn á á 106. mínútu en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
No comments yet