Margir stuðningsmenn Liverpool hafa reiðst félaginu fyrir að ná ekki að framlengja samninga við Trent Alexander-Arnold í fyrra og Ibrahima Konate nú, eða tryggja a.m.k. að félagið fái eitthvað fyrir sinn snúð.
Reyndar fengust 10 milljónir punda fyrir Trent í fyrra þegar Liverpool samþykkti að færa félagaskiptin fram um nokkrar vikur en Konate skilur ekki eftir sig túkall með gati.
Arsene Wenger, fyrrum knattspyrnustjóri Arsenal, segir þetta hinn nýja veruleika í samningum leikmanna og félaga.
“Hvað á félagið að gera ef leikmaðurinn vill ekki framlengja? Það er ekki hægt að selja hann án samþykkis þannig að valdið er algerlega í höndum leikmannsins ef hann stendur við sinn hluta samnings.”
Konate átti að sögn í viðræðum um Liverpool um framlengingu samnings í hálft annað ár. Þær viðræður reyndust sýndarleikur einn, rétt eins og í tilviki Alexander-Arnold fyrir ári
Í báðum tilvikum var Real Madrid búið að koma þeim skilaboðum til leikmannanna að þeirra biði samningur þegar þeir væru lausir hjá Liverpool.
Með þessu móti sleppur Real Madrid við að greiða háa fjárhæð fyrir vistaskiptin og getur þess í stað umbunað leikmanninum með veglegri greislu við undirritun samnings. Real notaði þessa aðferð líka þegar Kylian Mbappe kom frá PSG.
Vitnum aftur í Wenger: “Laun leikmanna eru orðin svo há í dag að þau geta hæglega orðið jafnvirði kaupverðs á fimm ára samningstíma.”
Sá kvittur fer nú um netheima að næstur í röðinni frá Liverpool til Real Madrid sé Dominik Szoboszlai. Samningur hans rennur út eftir tvö ár og Liverpool reynir nú allt til að fá hann til að framlengja. Fróðlegt verður að sjá hvort þær samningaviðræður þróast með sama hætti og hjá Trent og Konate.
No comments yet