Spunavélar slúðurmiðlanna djöflast nú mykranna á milli við að dæla út sögum, sem flestar eru uppsuni. Í sumum er þó oft sannleikskorn en svo eru líka fréttir sem eru réttar og byggðar á traustum heimildum.
Það nýjasta tengt Liverpool er að Ibrahima Konate sé á leið til Real Madrid á 4ra ára samningi og að AC Milan hafi áhuga á að ráða Arne Slot.
Kvittur um Konate og Real komst á kreik á miðju tímabili en fjaraði svo út enda frammistaða Konate vægast sagt brokkgeng hjá Liverpool. Sjálfur hélt Konate því fram allt undir það síðasta að hann vildi endurnýja hjá Liverpool en sagan hermir að viðræður hafi strandað á ákvæðum um bónusa.
Það að AC Milan hafi áhuga á Slot kemur frá ítölskum miðlum sem telja sig hafa heimildir fyrir viðræðum á milli aðila á morgun, miðvikudaginn 3. júní.
No comments yet