Heimildir okkar í Liverpool herma að Rio Ngumoha hafi verið orðinn svo örvæntingarfullur yfir skorti á tækifærum sem hann fékk hjá Arne Slot, að hann hafi beðið umboðsmann sinn að leita annarra möguleika fyrir sig.
Það kemur því ekki mjög á óvart að komið hefur fram að Bayern Munchen sýni nú áhuga á að kaupa Rio, sem þó er samningsbundinn til 2028.
David Ornstein, blaðamaður hjá The Athletic, staðfestir þennan áhuga Bæjaranna. Aðrar heimildir herma að fullt samkomulag hafi náðst á milli Bayern og fulltrúa Ngumoha þann 26. maí sl. eftir margra vikna viðræður.
Skv. sömu heimildum datt botninn úr öllu í gær, 4. júní - sama dag og Andoni Iraola skrifaði undir hjá Liverpool.
Ornstein segir engar beinar viðræður hafa átt sér stað á milli félaganna enda sé markmið Liverpool að bæta við sóknarmönnum frekar en að fækka þeim.
Ngumoha var einn fárra ljósgeisla hjá Liverpool á liðinni leiktíð en fékk mun færri tækifæri en flestir töldu hann eiga skilið. Okkur skilst að það hafi ekki verið fyrr en undir lok leiktíðar að hann fékk fleiri tækifæri eftir að Richard Hughes hreinlega krafðist þess af Slot.
No comments yet