Lítur á sig sem hluta af heild en ekki miðpunkt alls

Balague segir að þau gildi sem Iraola hefur að leiðarljósi smellpassi við hugmyndafræði Liverpool.

Liverpool gengur í dag eða á morgun endanlega frá ráðningu Andoni Iraola, sem aðalþjálfara liðsins til næstu tveggja ára. Ósk um tveggja ára samning er að undirlagi þjálfarans. Iraola flaug til Liverpool í morgun, 4. júní.

Spánverjinn Guillem Balague er virtur álitsgefandi og leikgreinandi. Hann segir í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum X (Twitter) að enginn vafi sé á að Alonso hafi verið fyrsti valkostur ef Slot yrði rekinn. Balague segir berum orðum að Alonso hafi sagt sér að það væri draumur hans að stýra Liverpool.

Þegar sá gluggi opnaðist var Liverpool hins vegar enn ekki á þeim buxunum að reka Slot. Chelsea sá sér leik á borði og setti sig í samband við umboðsmann Alonso.

Þar á bæ voru menn efins í fyrstu, en tilhugsunin um að vinna með ungan leikmannahóp heillaði. Chelsea spilar ekki í Evrópu á næstu leiktíð þannig að álag er mun minna en ella og miklir möguleikar á að þroska hópinn. Svo fór að Chelsea lagaði sig að kröfum Alonso um algert vald yfir leikmannamálum og réði hann.

Balague er sannfærður um að bæði Andoni Iraola og Xabi Alonso eigi eftir að vegna vel hjá Liverpool og Chelsea.

Balague segir að þau gildi sem Iraola hefur að leiðarljósi smellpassi við hugmyndafræði Liverpool. “Hann er Baski og þar eru mikil líkindi með Scouse-menningunni. Samkennd, vinnusemi, örlæti og samfélagsvitund. Andoni lítur á sig sem hluta af heild, frekar en miðpunkt alls.”

No comments yet