Liverpool búið að tryggja sér Diomande?

Samkvæmt heimildum okkar í Liverpool er félagið búið að tryggja sér Yan Diomande, hinn öskufljóta vængmann frá hjá RB Leipzig. Þetta er þó enn óstaðfest af þar til bærum aðilum.

Liverpool bauð RB Leipzig hærra verð en PSG, sem einnig vildi fá leikmanninn, og launin á Anfield eru hærri en PSG var tilbúið að greiða.

Diomande, sem er aðeins 19 ára, er með eftirsóttustu ungu leikmönnum í Evrópu og býr ekki aðeins yfir gríðarlegum hraða heldur getur hann leikið á báðum köntum.

Ofurkapp var lagt á að ljúka rammasamningi milli félaganna fyrir fyrsta leik Fílabeinsstrandarinnar á HM. Diomande sýndi þar snilli sína með landsliðinu gegn Ekvador.

Diomande átti frábæra nýafstaðna leiktíð. Lék 33 af 34 leikjum RB Leipzig í Bundesligunni, skoraði 12 mörk og átti 8 stoðsendingar. Hann hefur leikið 10 landsleiki og skorað í þeim 3 mörk.

No comments yet