“Þessi frammistaða var í raun leiktíðin í hnotskurn. Langt undir þeim viðmiðum sem félagið hefur sett sér og stuðningsmenn gera réttmætar kröfur um.”
Svo mörg voru orð Andy Robertson eftir enn einn hörmungarleikinn hjá Liverpool á þessari leiktíð gegn Aston Villa í gærkvöld. Robertson sat allan tímann á bekknum. Ef að líkum lætur gengur hann til liðs við Tottenham eftir að leiktíð lýkur.
Í orðum Robertson felst ekki aðeins gagnrýni á liðið sem slíkt heldur einnig á Arne Slot. Mohamed Salah hefur einnig ýjað að því að eitt og annað sé í gangi að tjaldabaki sem hann sé ósáttur við en á erfitt með að tjá sig um. Salah og Robertson eru mjög góðir vinir og ljóst að þeir hafa rætt þessi mál sín á milli.
Tapið í gær var eins og svo oft áður ekki bara tap heldur sorgleg staðfesting á því að Liverpool-liðið virðist með öllu stefnulaust, áhugalaust, úthaldslaust og metnaðarlaust. Með þannig fernu í farteskinu getur útkoman aldrei orðið önnur en raun ber vitni.
Þrátt fyrir afleita leiki að undanförnu bendir flest til þess að Liverpool haldi 5. sætinu. Eins og liðið hefur spilað er óraunsætt að reikna með meira en jafntefli í lokaleiknum gegn Brentford.
Ef allt fer á versta veg gæti Liverpool hafnað í 7. sæti ef leikurinn gegn Brentford tapast. Bournemouth getur náð 61 stigi með því að vinna lokaleikina tvo og Brighton gæti skákað Liverpool á markatölu með því að vinna báða sína leiki.
Liverpool gæti hafnað í 7. sætinu
Í orðum Robertson felst ekki aðeins gagnrýni á liðið sem slíkt heldur einnig á Arne Slot.
No comments yet