Mitt í öllu slúðrinu um leikmenn sem eru orðaðir við Liverpool tóku sig upp gamlir taktar þegar félagið keypti kantmanninn Victor Muñoz frá Osasuna - að heita má upp úr þurru - með því að virkja ákvæði samnings hans upp á 34,6 milljónir punda og það án þess að nokkuð spurðist út fyrr en málinu var lokið!
Muñoz hefur þegar lokið læknisskoðun en hann dvelur nú vestanhafs með spænska landsliðinu á HM. Muñoz verður 23 áraí júlí og samningur hans við Liverpool er til 6 ára.
Newcastle, sem sá hann sem arftaka Anthony Gordon sem fór til Barcelona, taldi sig hafa tryggt sér krafta hans. En á meðan samningateymi Newcastle prúttaði um verð rauk Liverpool til og virkjaði söluákvæði samnings hans.
Þessi ungi strákur getur leikið á báðum köntum eins og Yan Diomande og með kaupunum á honum má telja víst að Bradley Barcola sé út úr myndinni og að Cody Gakpo yfirgefi Liverpool.
Muñoz, sem fæddur er í Barcelona, kom í gegnum Las Masia, unglingastarf Barcelona, áður en hann fór til Real Madrid þar sem hann lék m.a. með félaginu í UEFA Youth League og fékk tækifæri með liðinu í Heimsmeistarakeppni félagsliða sl. sumar.
Með Vicinius Jr. í sömu stöðu hjá Real voru ekki mörg tækifæri í augsýn og úr varð að Muñoz gekk til liðs við Osasuna. Hann lék 34 leiki í La Liga sl. vetur og skoraði 6 mörk. Betri markatala en hjá Real Mallorca bjargaði Osasuna frá falli út La Liga í vor.
No comments yet