Samkvæmt heimildum okkar í Liverpool er félagið tilbúið að greiða himinháa fjárhæð fyrir Yan Diomande hjá RB Leipzig og yfirbjóða um leið tvöfalda Evrópumeistara PSG, sem einnig vilja fá hann.
Liverpool býður Leipzig þannig hærra verð en PSG og er einnig tilbúið að greiða leikmanninum hærri laun en Frakkarnir eru tilbúnir að gera.
Ofurkapp er lagt á að ljúka samningum fyrir fyrsta leik Fílabeinsstrandarinnar á HM eftir tæpa viku. Diomande hefur leikið 9 landsleiki fyrir Fílabeinsströndina og skorað í þeim 3 mörk.
Diomande, sem leikið getur á báðum köntum, er sá leikmaður sem Liverpool leggur lykiláherslu á að festa sér, ásamt Alex Scott hjá Bournemouth.
Diomande átti frábæra nýafstaðna leiktíð. Lék 33 af 34 leikjum RB Leipzig í Bundesligunni, skoraði 12 mörk og átti 8 stoðsendingar.
No comments yet