Liverpool leitar að framtíðarstjörnum

Mora varð næst yngsti leikmaður sögunnar til að hefja leik í útsláttarhluta HM. Aðeins goðsögnin Pelé var yngri þegar hann lék á HM 1958.

Eftir misheppnaða tilraun til þess að klófesta Yan Diomande frá RB Leipzig hefur lítið frést af tilraunum Liverpool til leikmannakaupa í sumar. Þörfin er þó óumdeild.

Nú berast af því fregnir að bæði Liverpool og Arsenal séu að berjast um sömu bitana. Annar er frá Georgíu en hinn frá Mexíkó.

Gilberto Mora, sem verður 18 ára í október, átti flotta leiki með Mexikó á HM og er sigti beggja ensku liðanna. Mora er ein helsta vonarstjarna knattspyrnunnar þar í landi.

Mora varð næst yngsti leikmaður sögunnar til að hefja leik í útsláttarhluta HM. Aðeins goðsögnin Pelé var yngri þegar hann lék á HM 1958.

Hinn leikmaðurinn er Andoria Bartishvili frá Georgíu. Hann var 17 ára í mars sl. og þykir gríðarlegt efni. Bæði Arsenal og Liverpool voru með útsendara á leik Flora Tallinn og FC Iberia 1999, sem FC Iberia 1999 vann 3:2. Bartishvili lék 80 mínútur í leiknum.

FC Iberia 1999 hét áður FC Saburtalo og vann m.a. sinn sjöunda titil á níu árum undir því nafni í vor.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

No comments yet