Liverpool og City togast á um þýskt ungstirni

Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að eftir Brexit geta ensk félög ekki keypt erlenda leikmenn fyrr en þeir hafa náð 18 ára aldri. Bæði City og Liverpool eru hins vegar með plan B.

Hinn 16 ára gamli Kennet Eichhorn er orðinn bitbein Manchester City og Liverpool en bæði liðin eru mjög áhugasöm um að ná samningum við hann.

Eichhorn er leikmaður Hertha Berlin og varð í ágúst í fyrra yngsti leikmaðurinn í byrjunarliði í þýsku 2. deildinni (Bundesliga 2), aðeins 16 ára og 48 daga gamall.

Eichhorn vakti gríðarlega athygli á nýliðinni leiktíð fyrir þroskaða frammistöðu sem afturliggjandi miðjumaður. Hann skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir Hertha núna í maí og varð þar með einnig yngstur til þess í sögu Bundesliga 2. Áður hafði hann skorað í bikarnum.

Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að eftir Brexit geta ensk félög ekki keypt erlenda leikmenn fyrr en þeir hafa náð 18 ára aldri. Bæði City og Liverpool eru hins vegar með plan B.

City hefur hugsað sér að “fóstra” hann hjá Bayer Leverkusen þar til hann verður 18 ára og fá hann svo yfir til Englands.

Liverpool er með svipaða hugmynd, nema hvað Eichhorn yrði “fóstraður” hjá RB Leipzig þar til hann verður 18 ára. Liverpool myndi þá greiða Leipzig fyrir þá þjónustu. Leipzig leikur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Rætt hefur verið um að þetta útspil Liverpool sé hluti af þeirri áætlun að ná kantmanninum Yan Dimoande frá Leipzig, þar sem Harvey Elliott færi í hina áttina sem hluti kaupverðs.

Margir líta á Diomande sem arftaka Mohamed Salah en erfitt verður að feta í fótspor hans. Sá hængur er hins vegar á þessari áætlun, að ríkandi Evrópumeistarar, Paris St Germain, hafa líka mikinn áhuga á leikmanninum.

No comments yet