Vangaveltur um fyrirhuguð leikmannakaup Liverpool hafa ekki í langan tíma verið eins fjörlegar og þessar vikurnar í kjölfar uppsagnar Arne Slot og ráðningar Andoni Iraola í hans stað.
Við höfum áður greint frá því að kantmennirnir Yan Diomande hjá RB Leipzig og Bradley Barcola hjá PSG séu báðir í sigtinu. Síðustu daga berast sífellt fleiri sögur um að Cody Gakpo sé líkast til á útleið frá Liverpool, rétt eins og Curtis Jones.
Liverpool er nú orðað við tvær framtíðarstjörnur, sem báðar eru að leika með sínum landsliðum á HM vestanhafs en Arsenal er líka með annan þeirra í sigtinu.
Annar er Ayyub Bouaddi, 18 ára gamall leikmaður Lille, sem átti frábæran leik sem afturliggjandi miðjumaður fyrir Marokko gegn Brasilíu í fyrsta leik liðsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Bouaddi leikið 63 leiki fyrir Lille.
Bouaddi hefur leikið með yngri landsliðum Frakka en valdi að spila fyrir karlalandslið Marokkó en hann á rætur að rekja þangað eins og svo margir leikmenn í frönsku deildinni. Arsenal er einnig mjög áhugasamt um hann.
Hinn leikmaðurinn er hinn sænski Yasin Ayari,sem reyndar á rætur að rekja til Túnis og Marokkó. Ayari er 22 ára gamall og skoraði tvö af mörkum Svía í 5:1 sigri gegn Túnis í fyrsta leik liðanna.
Ayari hefur verið hjá Brighton frá 2023. Hann var reyndar lánaður til Coventry City og síðan Blackburn Rovers en þótti ekki sýna eftirtektarverð tilþrif. Blómstraði hins vegar á síðustu leiktíð.
No comments yet