Liverpool vildi Iraola sem bakvörð árið 2013

Liverpool leitaði til Andoni Iraola þegar liðið var í leit að vinstri bakverði fyrir leiktíðina 2013-14. Iraola þótti álitleg skammtímalausn, þar sem hann hafði verið stöðugleikinn uppmálaður hjá Athletic Bilbao og samningur hans að renna út.

Liverpool var í hálfgerðum vandræðum með þessa stöðu. Jose Enrique var enn fyrsti valkostur en þótti orðið óstöðugur. Liverpool fékk því Aly Cissokho að láni frá Valencia þessa leiktíð.

Enrique meiddist svo illa í nóvember en svo fór að endingu að Jon Flanagan, þá aðeins tvítugur og réttfættur, eignaði sér vinstri bakvarðarstöðuna á seinni hluta leiktíðar.

Iraola var mjög uppnuminn af áhuga Liverpool á sér og sendi meira að segja þakkarbréf því til staðfestingar! Engu að síður valdi hann að framlengja til tveggja ára hjá Bilbao.

Iraola fór svo til Bandaríkjanna árið 2015 og lék tvö síðustu ár leikmannsferilsins með New York City FC.

No comments yet