Mamardashvili lánaður til Ítalíu?

Heimildir frá Ítalíu herma að Giorgi Mamardashvili, markvörður Liverpool, hafi verið boðinn þremur félögum þar í landi til láns í eina leiktíð.

Þetta bendir til þess að Liverpool ætli sér að finna annan arftaka Alisson Becker, en félagið er reyndar ekki tilbúið að láta hann fara til Juventus þrátt fyrir mikinn áhuga Tórínó-liðsins. Becker er samningsbundinn Liverpool til vors 2027.

Frammistaða Mamardashvili hjá Liverpool á nýliðinni leiktíð var gloppótt í fjarveru Alisson Becker. Sumir voru á því að Freddie Woodman, vara-varamarkvörður, væri síst lakari þegar hann hljóp í skarðið.

Mamardashvili var annars gripinn glóðvolgur af lögreglu í ómerktum bíl á M6 hraðbrautinni fyrir stuttu, þar sem hann var að horfa á myndband í símanum á 70 mílna hraða. Slapp með sekt og 6 punkta í ökuferilsskrána.

No comments yet