"Man enn hvernig Anfield sprakk"

Eins og allur fótboltaheimurinn vissi auðvitað fór það svo að Andoni Iraola skrifaði undir samning hjá Liverpool og verður aðalþjálfari liðsins næstu tvö árin.

Trúr sínum uppruna og gildum sagði Iraola m.a. : “Ég veit hverjar kröfurnar eru. Ég lofa engu, en ég tek áskoruninni. Ég man vel eftir fyrsta leiknum á Anfield á síðustu leiktíð. Staðan var 2:2 og við töldum okkur vera að ná í dýrmætt stig. En svo skoraði Chiesea og ég man enn hvernig Anfield bókstaflega sprakk. Mig langar að upplifa þetta frá hinni hliðinni.”

Fyrir þá sem ekki muna þá vann Liverpool Bournemouth í fyrsta leik síðustu leiktíðar, 4:2. Liverpool komst í 2:0 en gestirnir jöfnuðu í 2:2 áður en Chiesa skoraði á 88. mínútu og Salah innsiglaði svo sigurinn i uppbótartíma.

No comments yet